Greinar
Einföld leið til sjálfsuppbyggingar!

Nú á dögum kulnunar og orkuþurrðar er gott að læra að byggja sig upp á réttan hátt og koma í veg fyrir endurtekna kulnun. Fyrirlestur um Baujuna,- sjálfstyrkingaraðferð sem byggir á meðvitaðri öndun og tilfinningavinnu. Hún kennir þér að vera innan þinnar orkumarka, ver þig og verndar gagnvart kulnun. Á þessum fyrirlestri er fjallað um aðferð, hugsun og þann grunn sem Baujan byggir á. [...]
Lesa meiraHeiti Baujunnar

Samkvæmt orðabók þýðir bauja: 1 bauja, -, -ur, no. kv. dufl ; baujuvakt vakt þegar legið er við bauju. 2 bauja, -aði, so. setja út dufl, festa við bauju : bauja sig niður; fest skip sitt við dufl. Sjálfstyrkingu mína nefni ég Baujuna og er það heiti mjög vel við hæfi. [...]
Lesa meiraMeðvirkni

Með Baujunni ferðu úr meðvirkni, óöryggi og byggir upp heilbrigt og gott sjálfsöryggi.
Meðvirkni: Einstaklingur hefur misst tengslin við sjálfan sig, öryggi sitt. Hann stjórnast gjarnan af líðan og hegðun annarra eða af aðstæðum. Honum finnst hann einnig bera ábyrgð á líðan og hegðun annarra! Hann hefur misst eða ekki öðlast hæfileikann að vinna úr tilfinningum sínum út frá eigin forsendum og er því ekki fær um að bera ábyrgð á líðan sinni. Hann er ekki í jafnvægi en stjórnast af óöryggi, vörn eða stöðugri sektarkennd.Meðvirkni fer illa með okkur, hún skapar álag, innri spennu og ójafnvægi. Í besta falli veldur hún okkur óöryggi, minnimáttarkennd eða tilfinningalegri vanlíðan og álagi,- í versta falli algeru niðurbroti sem geta endað með fíkn, kvíða eða þunglyndi. Meðvirkni skapar veikindi, andleg og líkamleg. Við eigum erfiðara með að takast á við erfiðleika og förum verr út úr álagi og áföllum ef við erum meðvirk. Forsenda heilbrigðs einstaklings að vera fær um að skapa líðan sína sjálfur. Meðvirknin einkennist af orkuójafnvægi. Í meðvirkni erum við of mikið að þrífast á skyndiorku, því skapast þetta innra ójafnvægi. Náttúran, allt líf leitar eftir orkujafnvægi til að viðhalda heilbrigði og styrk. Baujan leiðréttir og styrkir eðlilegt orkuflæði líkamans og leitar jafnvægis. Með heilbrigðu sjálfsöryggi er orkan aðallega sótt frá slökun ,orkubrunninum sem endurnýjar sig stöðugt og er óþrjótandi. Með Baujunni öðlumst við innri ró og vellíðan með góðu sjálfsöryggi. [...] Lesa meira
Að lifa í núinu

Baujan miðar að því að hafa stjórn á tilfinningalegri, andlegri líðan sinni. Að geta sett sig í spor annarra, gefið meira af sér og notið líðandi stundar. Með Baujunni öðlumst við innra orkujafnvægi sem gerir okkur fært að lifa í núinu. Til að lifa í núinu þarf innra jafnvægi, góð tengsl við slökun þaðan sem lífsorkan kemur. [...]
Lesa meiraReiði - reiðistjórnun

Tilfinningar eru misauðveldar viðfangs og er reiði sú tilfinning sem flestum gengur erfiðast að glíma við. Hún er margslungin, lýsir sér á marga ólíka vegu og rætur hennar eru oft óljósar. Því þarf að veita henni sérstaka áherslu og góða athygli. Reiðin óhefluð og stjórnlaus getur verið lífshættuleg þeim sem hana ber og ekki síður [...]
Lesa meiraHugleiðingar um rödd, tilfinningar og öndun

Rödd fylgir líðan og er í heilbrigðum einstaklingi,- maðurinn sjálfur. Röddin kemur upp um leyndarmálin sem við ætlum okkur að geyma, hún getur komið okkur í vanda þegar hún dúkkar upp með réttar tilfinningar okkar eða hugsun jafnvel þegar við ætlum ef til vill að láta í ljós eitthvað allt annað,- blæbrigði raddar ljóstrar upp sannleikanum! [...]
Lesa meiraTilfinningakennsla barna á Íslandi

Ég hef kennt Baujuna í 15 ár í skólum meðal annars. Tilfinningakennslu vantar tilfinnanlega. Börnum er kennt flest annað en að læra á sig sjálf í íslensku menntakerfi en það ætti að vera undirstöðuþekking. [...]
Lesa meiraVirðing og tillitssemi

Hver og einn ber ábyrgð á líðan sinni og lætur hana ekki bitna á umhverfi eða öðru fólki. Hver og einn ber ábyrgð á hegðun sinni, tekur tillit til annarra og ráðskast ekki með þá. Enginn á að líða ofbeldi, ofbeldi er óheilbrigði sem alltaf þarf að uppræta. [...]
Lesa meiraByrgjum Brunninn – Baujan

Úr skýrslu Grunnskólafulltrúa Mosfellsbæjar: Upphaf verkefnisins í Mosfellsbæ var að Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar fékk 200.000 króna styrk úr Forvarnarsjóði vorið 2003 til þess að framkvæma verkefnið ,,Byrgjum brunninn-sjálfstyrking í grunnskólum“ . Guðbjörg Thoroddsen leikari, kennari og meðferðarráðgjafi var fengin til þess að koma inn í Lágafellsskóla skólaárið 2003-2004 með námskeið fyrir grunnskólabörn í tilfinninga kennslu og sjálfstyrkingu. [...]
Lesa meiraTil þeirra sem standa Baujuvaktina

„Sjálfsmatið er líka lykillinn að skilningi á sjálfum okkur og öðrum.Ef frá eru talin vandamál sem eiga sér líffræðilegar orsakir get ég ekki ímyndað mér nokkurt sálfræðilegt vandamál sem ekki er hægt að rekja til afleitrar sjálfsmyndar- og þá eru meðtalin kvíði og þunglyndi, sjálfsmorð, tilfinnigalegur vanþroski, kynlífstengd vandamál, hræðsla við náin kynni, hræðsla við velgengni, lélegur árangur í námi, misnotkun á áfengi og fíkniefnum glæpir og ofbeldi….[...] Lesa meira
Afmælisbréf frá 2010 í tilefni af 10 ára afmæli Baujunnar

Til hamingju! Kæru Baujuleiðbeinendur og aðrir sem hafa lært Baujuna! Nú árið 2010 eru tímamót hjá Baujunni, sjálfstyrkingu. Baujan hefur nú starfað samfleytt í 10 ár við stöðugan meðbyr og verður eftirspurn eftir aðferðinni sífellt meiri, bæði hjá fagfólki og almenningi. [...]
Lesa meira