Námskeið fyrir fagfólk

Námskeið Baujunnar eru í Rvk. en
fagfólk úti á landi getur pantað það heim.
Kennari: Guðbjörg Thóroddsen.

Námskeið fyrir fagfólk hafa verið frá árinu 2003

Náms-og starfsráðgjafar, félagsráðgjafar, kennarar, hjúkrunar-,talmeina- og sálfræðingar og aðrir þeir sem vinna að aðhlynningu og mannrækt hafa sótt námskeiðið. Meira en 150 náms-starfsráðgjafar hafa komið á þessi námskeið auk fólks úr ótal öðrum fagstéttum. Kennd er aðferðin og sumir kaupa hana til að kenna sjálfir og verða þar með Baujuleiðbeinendur.
Sjá neðar, Ljósabaujan.

Lýsing: Baujan er auðveld sjálfstyrkingaraðferð sem byggir á tilfinningavinnu og slökunaröndun. Aðferðin miðar að því að hafa stjórn á tilfinningalegri líðan sinni. Fjallað er um þær aðferðir, hugsun og uppbyggingu sem Baujan byggir á. Námskeiðið er ætlað til nota við uppbyggingu skjólstæðinga eða sjálfra sín.

Markmið: Að loknu námskeiði eiga þátttakendur að þekkja aðferðir Baujunnar, geta nýtt þær við ráðgjöf og til eigin uppbyggingar.

Viðfangsefni: Tilfinningakennsla og þjálfun. Kennd er leið til að vinna úr og komast heil frá áföllum. Baujan er aðferð til að forðast meðvirkni en byggja sig upp á heilbrigðan hátt. Kennd er slökunaröndun og fjallað um tengsl öndunar og tilfinninga. Afhentir lyklar til sjálfsuppbyggingar.

Vinnulag: Fyrirlestur, umræður og þjálfun.Miðað er við hámark 5 þátttakendur. Kaffiveitingar og Baujan, sjálfshjálparbók fylgja. Þátttakendur fá skjal að loknu námskeiði sem vottar þátttöku.

Verð er kr. 70.000.

Ljósabaujan

Réttindi til kennslu: Keypt er kennsluefni Baujunnar, prufukennt nokkrum sinnum, komið í handleiðslu. Diplóm/skjal er afhent.
Aðeins fagfólk og þeir sem lokið hafa grunnnámskeiði geta fengið réttindi til að kenna Baujuna.
Það treystir það góða orðspor sem Baujan hefur og tryggir rétta og árangursríka kennslu að handleiðsla fylgir. Baujan er kennd víða innan félags-heilbrigðis- og menntastofnana Íslands og því lögð áhersla á fagmennsku kennslunnar. Þátttakendur fá til eigin afnota allt efni Baujunnar, öll gögn til sjálfstæðrar vinnu, kennslu og fyrirlestrahalds.

Þátttakendur fá diplóm / skjal að lokinni handleiðslu sem vottar þátttöku og veitir kennslu-réttindi Baujunnar. Þessi réttindi heitir Ljósabaujan. Þeir sem hafa tekið Ljósabaujuna fá nöfn sín skráð hér fyrir neðan á heimasíðu Baujunnar ef óskað er. Baujuleiðbeinendur sem tekið hafa Ljósabaujuna hafa betri og öruggari grunn til að standa á við kennslu Baujunnar.

Ljósabaujan; efni, handleiðsla/endurmenntun, réttindi til kennslu.

Eftir grunnnámskeið fær viðkomandi öll kennslugögn Baujunnar og prufukennir hópi eða einstaklingi samkvæmt þeim aðferðum sem þegar hafa verið kenndar á grunnnámskeiði.

Eftir það er komið í handleiðslu þar sem farið er yfir prufukennsluna, lagfært það sem betur má fara og þátttakanda er leiðbeint áfram. Einungis 2 eru í handleiðslutíma.

Verð Ljósabaujunnar er kr. 130 þúsund.

N.B. Fagfólk sem fékk efni og kennsluréttindi Baujunnar áður en Ljósabaujan varð til býðst að koma í handleiðslu/endurmenntun og öðlast þá réttindi Ljósabaujunnar upp á tryggari kunnáttu.


Baujuleiðbeinendur sem hafa tekið Ljósabaujuna hafa betri og öruggari grunn við kennslu Baujunnar.
Nöfn þeirra sem vilja eru skráð hér:
Aðalheiður Reynisdóttir
,
Sauðárkróki
Sími: 8676072,
netfang: heida@FNV.IS

Eydís Katla Guðmundsdóttir,
Vallaskóla á Selfossi
Sími: 4805800, netfang:
eydis@vallaskoli.is

Jóhanna Einarsdóttir,
Sunnulækjarskóla á Selfossi
Sími: 4805400,
netfang: johannae@sunnulaekjarskoli.is

Rut G. Magnúsdóttir, kennari og djákni,
Lágafelsskóli í Mosfellsbæ
Sími : 8622925,
netfang: rut@lagafellsskoli.is

Sigríður Hrönn Sigurðardóttir, hjúkrunar-og guðfræðingur, sálgæsla og ráðgjöf.
Sími: 561-1000/Samhjálp,
Stangarhylur 3A, Rvk.
Netfang: hronn@samhjalp.is

Ragnhildur Birna Hauksdóttir, fjölskyldumeðferðarfulltrúi
og leikskólakennari, Álftanes
Sími: 552 5747 / 823 3253,
netfang: rbh72@simnet.is

Olga Sveinbjörnsdóttir, náms- og starfsráðgjafi,
Vallaskóla á Selfossi
Sími: 8450076,
netfang: olgas@vallaskoli.is

Heiður Eysteinsdóttir, náms- og starfsráðgjafi,
Vallaskóla á Selfossi
Sími: 6616080,
netfang: heidur@vallaskoli.is

Ólöf Bolladóttir, sérkennari,
Háaleitisskóli,Reykjanesbæ.
Sími : 861 5017